Daníel Sigurbjörnsson
Upphafssíða
 
Danni
Listar
Verkefni
 
Webmail

New York City - Ábeningar frá Danna

Goggle Earth punktar - New York - Dannis.dk
Flestir þeir punktar sem ég gef upp hérna fyrir neðan eru í þessu skjali. Nóg er að hlaða því niður og opna það beint ef Google Earth er uppsett. Þarna eru líka nokkrir sjónvarpsþáttapunktar (Friends og Seinfeld).

Heimasíðan yelp.com er ansi góð til þess að finna allt, veitingastaði, bari, þvottahús, söfn og allt. Einnig hefur umsagnir gesta virkað mjög vel á mig.

Mæli með Meatpacking District, það er nokkuð margar flottar búðir þar sem eru settar inn í gömlu slátraraplássin. Fyrir þá sem horfa mikið á Sex and the City þá er það einmitt þangað sem Samatha flutti þegar hún missti íbúðina í gamlingja húsinu vegna stuna. Einnig er búið að gera garð úr gömlu lestarbrúnni sem var þar yfir svæðinu. Það er víst virkileg vel heppnað.

Shake Shack NYC
www.shakeshacknyc.com
Madison Square Park
Veljið Shack Cam á heimasíðunni og þá sést hvað það eru margir að bíða eftir afgreiðslu. Þetta er talinn vera besti hamborgarastaðurinn í New York. Þetta er orðið að keðju. Nú þegar eru 3 staði í New York. En fyrsti staðurinn var opnaður í Madison Square Park.

Village Vanguard
www.villagevanguard.com
178 7th Ave S (between 11th St & S 7 Ave), New York, NY 10014
Þetta er jazz staður sem guide í Gray Line Sight Seeing mælti með, og sagði að þetta væri jazz staðurinn í New York. Yelp.com mælir með honum og umsagnir gesta á Yelp gefa 4½ stjörnu af 5 mögulegum. Ég hef ekki getað farið á hann út ýmsum ástæðum. Ég verð að fara á hann næst
þegar ég kem til New York.

The Diner - Meatpacking District
www.thedinernyc.com
44 9th Ave (between 14 St & 14th St), New York, NY 10011
Nokkuð góður diner akkúrat á milli Chealsea og Greenwich Village.

Grotta Azzurra Risroante
www.grottaazzurrany.com
177 Mulberry Street, Little Italy New York, NY 10013
Frábært andrúmsloft, gamall staður og góður ítalskur matur í risaskömmtun.Þar á horninu á móti er ítalskur köku staður, ég mæli ekki með staðnum.

Singapore Cafe
69 Mott Street, New York, NY 10013
Staðurinn er eins og hann hafi verið opnaður þegar annar staður hefur lokað, líklegast ítalskur ísstaður.Þetta er svon kínverskur, asískur fusion staður frábær matur; oft nokkuð sterkur. Mæli með Pad Thai og Malaysian Style Fried Chicken Wings í forrétt.

Wildwood Barbeque
www.brguestrestaurants.com
225 Park Avenue South at 18th Street, New York, NY 10003
Þetta er svona venjulegt steikhús, þótt það sérhæfi sig í spare ribs. Þetta er einn sá besti sem ég hef svona Franchise steikstaður sem ég hef farið á í lengri tíma.

Johnny Rockets
www.johnnyrockets.com
Það eru nokkrir svona staðir í New York, mæli eindregið með þessu sem svona skyndibitahamborgarastaður, þó telja bandaríkjamenn þetta ekki til skyndibitastað :)
Þetta er í gömlum dinerstíl, gömul tónlist og vanalega mjög hresst afgreiðslufólk.

Bókabúð
Shakespeare & Co Booksellers
NoHo, 716 Broadway Frnt, (between Washington Pl & Waverly Pl), NY 10003
Þetta er virkilega flott gömul og flott bókabúð, hefur margar skemmtilegar öðruvísi bækur og það er bara huggulegt að koma þarna inn. Er rétt á Broadway alveg við austur hlið Washington Square Park, sem er eiginlega algjört skilyrði að skoða. Oftast skemmtilegir jazzistar að spila í vesturhluta þess garðs. Þar aðeins vestar er West Village þar sem er að stórum hluta hommahverfi New York, virkilega skemmtilegt svæði. Þaðan er stutt upp í Meatpacking Disctrict.

Frá JFK
Leigubíll, flatt 45 USD, þá vantar tip og hugsanleg veggjöld.
Subway alla leið á Manhattan 7.5 USD (Airtrain 5 og Subway 2.5), ég get gefið þér info hvaða leiðir á að nota.
AirTrain til Jamaicai Station og svo LIRR (Long Island Rail Road) til Penn Station, þaðan er síðan hægt að koma sér um Manhattan kostar um 15 USD (5 fyrir Airtrain og ~10 fyrir LIRR).

Mæli svo með

MTA - Þetta er samgöngufyrirtæki NYC, mæli með því að nota neðanjarðarlestinni - kort af kerfinu. Ég mæli með nokkra daga passa (7 dagar á 27 USD) og kaupa það strax við komu, þetta mun marg borga sig ef lestin er notuð eitthvað! Hver ferð kostar annars 2 USD.

Tenement Museum - www.tenement.org - 108 Orchard Street, Lower East Side -Þetta safn sá ég í sænskum þætti þar sem kona bjó í New York í 1 mánuð og hún mælti með þessu safni. Við urðum að sleppa einhverju og slepptum því miður þessu safni. Það er eingöngu hægt að fara með guide í gegnum þetta safn. Það eru nokkrir túrar sem hægt er að velja í gegnum - 20 USD.

Guggenheim - www.guggenheim.org - 1071 Fifth Avenue (at 89th Street)
New York, NY 10128-0173 - 18 USD

Frick Collection - www.frick.org - 1 East 70th Street, NY 10021 - frábært safn listaverka, ef eingöngu á að heimsækja eitt safn í NY þá er þetta safnið - 15 USD.

Rockafeller - On the top of the Rock - www.topoftherocknyc.com - 20 USD, sérð yfir garðinn og alla hina turnana, líka Empire State

Gray Line New York Sightseeing - www.newyorksightseeing.com - skemmtilegar ferður um Manhattan, upper og lower. Reynið að fá ungastráka sem guide, þeir eru af einhverjum ástæðum fyndnari en þeir eldri. Og konurnar sem við lentum á, gátu alveg eins verið að lesa þetta allt upp. Hver túr 44 UDS annars 54 USD fyrir alla 3 (þá er Brooklyn túr inn í því), hver túr er cirka 2 tímar.

Bátasiglingum - Það eru nokkrar leiðir, það er hægt að fara til Staten Island ókeypis með Staten Island Ferry (appelsínugular ferjur), það er þó lítið að sjá þar. Svo er Shark Tours (hraðbátaferð), hægt er að sigla um neðri hluta Manhattan, bæði með A*** (man ekki nafnið) og Manhattan Water Taxi. Allar þessar ferðir kosta um 30 USD og eru í svona cirka 1½ tíma, margir byrja við Sout Street Pier number 18. Ef þú villt fara hringin í kringum Manhattan þá þarftu að fara upp á 42 stræti, vestanmeginn.

Divebar - mæli með að þú skellir þér á divebar leiðangur. Byrjaðu að tala við einhverja og farðu af stað með þeim. Það er víst hægt að finna félaga á Yelp.com fyrir pöbbarölt, alveg vel athugandi.

Það er einnig hægt að finna New York CityPass - www.citypass.com - sem dugar í eftirfarandi fyrir 79 USD (kostar annars alls 140 UDS);
Empire State Building Observatory
American Museum of Natural History & Rose Center
Guggenheim Museum
Museum of Modern Art (MoMA)
The Metropolitan Museum of Art and The Cloisters
Statue of Liberty & Ellis Island or Circle Line Sightseeing Cruises or Liberty Cruise or The Beast Speed Boat