Daníel Sigurbjörnsson
Upphafssíða
Danni
Listar
Verkefni
 
Webmail
Daníel Sigurbjörnson
El-ingenir, rafvirki, fiktari og þúsundfjalamaður.
Fæddur þann 17.október 1978 í Reykjavík

Fæddur á fæðingaheimili Reykjavíkur og alinn upp í Breiðholtinu, fyrst á Eyjabakkanum og loks í Flúðaselinu. Hóf skólagöngu í Seljaskóla. Tók eitt ár í Menntaskólanum í Reykajvík, gafst upp á þeim skóla, flutti sig yfir í Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Tæknistúdentspróf og burtfarapróf í rafvirkjun frá FB árið 2000. Býr sem stendur í Kolding, Danmörku. Stundaði nám við Ingeniørhøjskolen Odense Teknikum í Rafmagnstæknifræði, með sérhæfingu á sterkstraumsviði. Starfa hjá APC í Kolding, sem er Research and Development deild APC.

 

Starfsferill
RTS - Raftæknistofan Verkfræðistofa
2007:Rafmagnstæknifræðingur, hönnuður skjá- og stýrikerfa.
Hönnun á stýrikerfum iðntölva (PLC) og skjákerfum (SCADA). Aðallega er notað forrit og búnaður frá AB (RSView og RSLogix), Siemens og frá Wonderware (InTouch). Verkefni fyrir álver í Svíþjóð og Dubai, stýrikerfi og snertiskjáforritun fyrir sjóveitu OR, jafnframt umsjón með eftilitskerfum snjóbræðslukerfa Reykjavíkurborgar.American Power Conversion - APC
2006-2007
Configuration Engineer for Pre-sales Technical Support Team for the EMEA CountriesStrunge & Hartvigsen, rådgivende ingeniører Vejle A/S.
2005 - 2006: El-afdeling, rådgivningsingeniør (ráðgjafatæknifræðingur).
Starfið felur í sér, fyrst og fremst, að undirbúa tilboðsgögn. Það er að segja ég fæ arkitektateikningar, lýsingu (þar undir notkun og hönnun) af byggingunni og einnig kröfur sem eru gerðar til byggingarinnar, loks geri ég tilboðsgögn fyrir verkið, það er að segja bý til lýsingu sem hinn almenni rafmaður getur lesið, þannig að hann getur farið að settum lögum og reglum.Smith og Norland
2002 - 2004: Raflagnadeild, sumarstarf.
Sala og ráðgjöf á raflagnabúnaði, bæði til heimahúsa og iðnaðar. Starfið krefst sveinsprófs í rafvirkjun. Krefst góðrar tæknilegrar þekkingar á þeim búnaði sem Smith og Norland er með til sölu. Mest öll sala og ráðgjöf er til rafvirkja. Ég mun vinna hjá þeim aftur í sumar.

Vari - Öryggisþjónusta
1997 - 2001: Tæknideild.
Uppsetning, sala og viðhald á öryggisbúnaði, ýmiss konar. Vegna þess að ég hef i höndunum löggildingu, á uppsetningum brunakerfa, þá var það mitt aðal starfssvið hjá Vara. Einnig sá ég algjörlega um öryggiskerfi nokkurra fyrirtækja, þar á meðal Össurar, Tristan (nú Þekking) og nokkrar byggingar Landsspítalans við Hringbraut. Starfið byrjaði sem sumarstarf og starf yfir jólavertíðina, með skóla.

Hagkaup / Nýkaup
1995 - 1999: Kjörgarður við Laugaveg, sumar- og helgarstarf.
Var ráðinn sem kassastarfsmaður í fyrstu. Fór fljótt að vinna alla sunnudaga og annan hvern laugardag yfir skólamánuðina. Fékk eins mikla vinnu og ég hafði áhuga á. Stoppaði á næstu öllum vígstöðvum verslunarinnar, þar á meðal starfaði ég sem vaktstjóri, við móttöku á lager og næturáfylling.

Bóksala Nemenda í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
1995 - 2002: Bóksala.
Byrjaði sem ein af hjálparhöndum bóksölustjórans, í byrjun hverrar annar. Varð svo ólaunaður (fékk þó frítt afnot af skólabókum) starfsmaður bóksölunnar, í frímínútunum. Síðasta námsárið mitt í FB (1999-2000), var ég ráðinn sem bóksölustjóri. Þetta er fastlaunað starf, með sölutengdum bónus. Vegna mikillar óvissu í skólanum, þá var ráðlagt að ég héldi stöðunni, þótt námi mínu væri lokið í skólanum. Þar af leiðandi starfaði ég sem bóksölustjóri skólaárið 2000-2001 og loks sem bókhaldari, skólaárið 2001-2002.
Bóksalan er algjörlega óháð starfsemi nemendafélagsins, þó greiðir bóksalan hagnað hennar, í lok hverrar annar, til nemendafélagsins. Velta bóksölunnar er nærri 15 milljónir á ári.

Eyjólfur Rósmundsson rafverktaki
2002: Almenn rafvirkjastörf, sumarstarf.

Vínbarinn Kirkjutorgi
2000: Barþjónn.

Íslenks Útivist - Nanoq
1999 - 2001: Skódeild, helgarstarf.

Stúdíó Ágústu og Hrafns
1997 - 1998: Móttaka og leiðbeinandi, helgarstarf.

Reykjavíkurborg
1994 - 1995: Gróðursetning, sumarstarf.

Menntun og Réttindi
Rafmagnstæknifræði, sterkstraumur (B.Sc - Diplomingeniør)
2005: Ingeniørhøjskolen Odense Teknikum.

Danskue titill á lokaverkefninu.
Anvendelse af slukkespoler i mellemspændingsnet.
Fejlstrømme og minimering samt indikering af disse i 20 kV distributionsnet.

Enskur titill á lokaverkefninu.
The use of arc suppression coils in MV distribution networks.
- Fault currents, minimizing and indicating of those in 20 kV networks.

Rafmagnstæknifræði, 1. hluti
2002: Tækniskóli Íslands.

Sveinspróf í rafvirkjun
2001: Rafiðnarskóli Íslands.

Löggilding á uppsetningu brunakerfa
2000: Rafiðnarskóli Íslands.

Tæknistúdent
2000: Fjölbrautskólinn í Breiðholti.

Burtfararpróf í rafvirkjun
2000: Fjölbrautskólinn í Breiðholti.

Námskeið
Vijeo Citect Scada
2008: Schneider ElectricJapanska I og II
2008: Mímir SímenntunPresentation Skills
2007: APC Denmak ApSMeeting Management
2006: APC Denmak ApS7 Steps Methodology
2006: APC Denmak ApSAPC Professional New Hire Training
2006: APC West Kingston, RI, USA, 2 vikna námskeiðAPC Smart UPS VT - AGS training
2006: APC Denmark ApS

Félagsstörf
20088:

Meðstjórnandi Starfsmannafélags RTS

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 1999 - 2000:

Veggblaðsnefnd, Pro et Contra (Ritstjóri).

1998 - 1999:

Skólastjórn (Fulltrúi nemenda).

1998 - 1999:

Árshátíðarsýning, Með fullri reisn (The Full Monty)
(Leikari og sviðsmaður).

1997 - 1998:

Nemendaráð (Varaformaður).

1997 - 1998:

Árshátíðarsýning, Koppafeiti (Grease)
(Ljósa- og sviðsmaður).

1996 - 1997:

Veggblaðsnefnd, Pro et Contra (Ritstjóri).

Viðurkenningar
Viðurkenningar fyrir kynningarstörf
2004: Ingeniørhøjskolen Odense Teknikum.
2002: Tækniskóli Íslands.

Verðlaun og viðurkenning fyrir lofsverða ástundun,
framfarir í námi og virka þátttöku í félagslífi
2000: Rótarýklúbburinn Reykjavík - Breiðholt.

Viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu félagsins
2000: Nemendafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti.

Áhugamál
Ljósmyndun
Baktería sem ég hef haft lengi, þó ég hafi ekki tekið margar myndir fyrir árið 2000. Ástæðan liggur í myndavélakaupum eftir stúdentsprófið. Hef loks keypt stafrænan grip. Þó er hún ætluð eingöngu til gamans, ekki til að svala áhuganum.

Útivera
Þó lítið hefur farið fyrir þessum lið síðustu ár, þá er þetta það áhugamál sem gefur mér einna mest. Undir þetta telst til gönguferðir og ferðalög innanlands.

Ferðalög
Einu sinni á ári til útlanda, það er mitt lífsmottó. Það hefur ekki verið haldið hátiðlegt um nokkurt skeið og ég sé ekki fram á að ég verði á eitthverju heimshornaflakki næstu 5 árin (nám, íbúð, bíll, gifting (hummmm) og börn). Langar að fara með Síberíuhraðlestinni, þá Mongolíuleiðina til Pejing. Langar aftur til Tyrklands og loks keyra um Ameríku og skoða litlu krummaskuðin.

Kvikmyndir og tónlist
Mér finnst rosalega gaman að pæla í kvikmyndum og fer gjarnan í bíó, stökum sinnum, það hefur sem betur fer minnkað svona síðustu árin. Ég sinni tónlistaráhuga mínum á þann veg að fara á tónleika og kaupa plötur. Ég set ekki markmið mitt að pæla eins mikið í tónlistinni eins og kvikmyndum.

Fánýttur fróðleikur
Ég hef alveg rosalega áhuga á hinni og þessari vitleysu.

Fluguhnýtingar
Það er töluvert langt síðan ég hafði þetta sem niðurkeyrslu verkfæri. Þetta róar mann alveg niður á gólf. Tók upp á því að taka með mér fluguhaldarann þegar ég fór til Danmerkur eftir jólin 2004 og hef verið að leika mér aðeins svona á kvöldin. Ég er ekki búinn að mastera þetta en fluguhnýtingar er eitthvað fyrir mig og engan annan.

Framtíðaráform og óskhyggja
Nú er námi mínu loknu, í bili. Næstu árin eru undir Unni komin. Hún á 2 ár eftir af sínu námi í Kolding. Ég get ekki sagt að ég sé tilbúinn til þess að flytja til Íslands, til þess að eiga börn og buru. Skammtímismarkmið mitt er að eignast bíl og reka hann. Unnur fer í pratík á tveimur stöðum í ár, annar er á Norður-sjálandi og hinn er í Þýskalandi, Linnich. Ég hef aðeins verið að spá í að fara í meira nám, en veit ekki. Lengi hefur mig dreymt um að taka húsgagnasmíði, eða einhverja smíði, þá í kvöldskóla, aðeins til þess að geta orðið gráhærður leikfangaafi með verkstæði. það stendur svo sem ekki alveg manni til boða að taka smíðina hérna úti, þar sem kennslan fer allt öðruvísi fram hér en heima. Síðan hef ég verið að skoða skóla í Jönköping í Svíðþjóð, til þess að læra lýsingarhönnun. Það nám er 2 ár og slúttar með "háskólaprófi", það er einskonar diploma, en ekki gráða sem slík. Er reyndar mjög hrifin af öllu því sem kemur lýsingu og sér í lagi stýringum í kringum lýsingar, það er í flestum skitpum tengt hússtjórnarkerfum. Einnig getur vel farið svo að ég fari áfram í verkfræðina, þá er ekki nauðsynlegt fyrir mig að gera það í Danmörku. Ég hef fundið nokkra skóla sem sérhæfa sig í dreifingu á rafmagni, það er eitthvað sem ég gæti vel hugsað mér. Til dæmis þá hef ég fundið einn skóla í Aachen í Þýskalandi og annan í Manchester. Gallinn við að læra í Þýskalandi er þýskan, maður finnur illa skóla sem tekur á móti international stúdentum og kennir á ensku, Aachen gerir það, en maður verður samt að koma með vottorð upp á þýskukunnáttu og verður að taka kúrsa í þýsku, svona er það.

Ef allt klikkar þá getur maður bara flutt heim til Íslands og fengið sér hús með bílskúr.

Greinaskrif
Morgunblaðið
Efling tæknifræðinnar 25. ágúst 2005