Daníel Sigurbjörnsson
Upphafssíða
Danni
Listar
New York
Webmail
Youtube
Systa

IOT 6. önn

Eldingavarnir
Hér er hannað eldingavarnir í byggingu eina í Kaupmannahöfn. Bæði eldingavarnir innan og utanhúss. Það hefur sýnt sig að ef eldingavarnir utanhúss eru rétt staðsettar þá fer samt 50% spennunnar vegna eldingarinnar inn í húsið. Þess vegna sleppur maður ekki með að setja eingöngu eldingavarnir utanhúss heldur verður að verja það líka innandyra.

Ljósbogar
Verkefni og tilraun í tengslum við ljósboga. Ljósbogi er það sama og notast er við rafsuðu. Þegar rafmagn er rofið myndast ljósbogi á milli hreyfanlega spennuhafandi hluta rofans. Til þess að stjórna ljósboganum er hægt að velja ýmsar leiðir. Þessi ritgerð fer í gegnum nokkra þessara aðferða og reynar að útskýra framgang þeirra.

Hönnun á lágspennuvirki
Hönnun á lágspennuvirki fyrir fyrirtæki með sinn eigin spennubreyti. Valið er yfirálagsbúnaður, öryggi og kaplar, eftir aðstöðum sem eru gefin upp fyrir fyrirtækið. Veitt er með TN-C-S kerfi.

Tilstandmodel af DC mótor
Með einföldum á virkni DC mótors er gerð einfaldar jöfnur sem sýna samband spennu og hraða og straums og lestunar. Þessi sambönd eru síðan notuð til gerðar á tilstandsmódeli fyrir mótorinn. Módelið er loks notað til þess að búa til líkan í MatLab Simulink.

Simulering af afstandskortslutning
Lokaverkefni í MSD - Modulation og Simulering af Dynamiske Systemer. Áfangi í sem kennir reglun, sér í lagi með hjálp MatLap og MatLab Simulink.

IOT 4. önn

Generatorsstýring
Verkefni sem fól í sér að framkvæma fullkomna stýringu á rafal með PWM - Pulse Width Modulation. Notast var við aldnið samfösunarkerfi sem skólinn (IOT) á, þar sem stærðarinnar mótstöðum er snúið til þess að stýra straum inn á rafalinn og tvær aðrar til þess að stjórna hraðanum (DC long shunt mótor). Í stað handafls voru notaðir þrír servo mótorar. Reint var við reglun á þessum mótorum með hjálp PI regulators. Virkaði ekki innan uppgefins ramma svo valið var að nota einfalda matrísu útilokanir. Kerfið tekur ekki launafl með í reikninginn.

Load - Flow
Til þess að reikna þá spennu sem þarf að setja inn á háspennulínu út frá þeirri spunnu sem á að vera á hinum endanum eða öfugt er notaðir svokallaðir Load-Flow útreikningar. Þessir útreikningar sýna vel spennufallið sem verður á flutningsleiðum háspennulína.

Búðu til einfaldann DC mótor
Einföld æfing þar sem sýnt var fram á virkni DC mótors. Þetta er algjört princip æfing. Notast var við vír, segla og spennugjafa.

SRM - Switch Reluctance Motor
Með notkun á PWM - Pulse Width Modulation er framkvæmd stýring á SR mótor. Verkefni sem gekk upp og niður. Ritgerðin sýnir helstu þætti verkefnisins sem virkaði aldrei í þeirri mynd sem sett var fram í byrjun verkefnisins.

IOT 3. önn

LVDT - Linier Voltage Differential Transducer

Hér er leikið sér að segli sem er færður fram og til baka í segulsviði. Tvær spólur, sitt hvoru megin við segulsviðsgjafann, spana upp spennu eftir því hvar segullinn er í segulsviðinu. Með þessu er hægt að búa til einfaldan tilfærslumæli. Mælirinn mældi allt að 2,5 cm með 0,1 mm nákvæmni.

Fjölbrautaskólanum í Breiðholti

Sveiflur
Lítil ritgerð úr loka áfanga í eðlisfræði í FB. Hvað eru sveiflur? Einfaldar útskýringar á því hvað sveiflur eru. Reynt er að ýtskýra hraða, hröðun og tíma sveiflna. Hægt er að nota þessa þekkingu til útreikninga á öllum sveiflum, til dæmis sveiflur í vatni (öldur) eða sveiflur í gormum.

Rafhlöður
Lítil kynningarritgerð um rafhlöður. Verkefni úr einum af áföngunum í rafvirkjun í FB á sínum tíma.

Rafbílar
Lítil kynningarritgerð um rafbíla. Verkefni úr einum af áföngunum í rafvirkjun í FB á sínum tíma.